Landlæknisembættið hélt ráðstefnu og kynningarfund fyrir hagsmunaaðila um Gagnreynda heilsu, 6. október 2026, Þórunnartúni 1, 105 Reykjavík, sem fulltrúar HEILAHEILLA, Þórir Steingrímsson formaður og Valgerður Snæland Jónsdóttir sóttu. Fór kynningin fram í ráðstefnu- og fundarsalnum Gullfossi, Fosshóteli Reykjavík sem þær Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og María Heimisdóttir landlæknir opnuðu með um innleiðingu NICE, er Hugh McGuire, yfirráðgjafi, NICE kynnti nánar.


