Mætt Þórir Steingrímsson, formaður; Páll Árdal, gjaldkeri; Sædís Björk Þórðardóttir ritari; Kristín Árdal og Gísli Geirsson varastjórn. Dagskrá: Formaður gefur skýrslu Þórir Steingrímsson, formaður fór út til Maastricht á ráðstefnu með SAPE nú í byrjun maí, var mismunandi eftir löndum hvernig eftirfylgni með strokeþolum er. Áætlaður fundur 13 maí með Heilbrigðisráðuneytinu, Birni Loga og Marianne […]
Mætt Þórir Steingrímsson, formaður; Páll Árdal, gjaldkeri; Sædís Björk Þórðardóttir ritari; Kristín Árdal og Gísli Geirsson varastjórn. Dagskrá: Formaður gefur skýrslu. Sagði Þórir formaður frá vinnu með SAPE hópnum og vinnu vegna eftirfylgni með sjúklingum eftir heilablóðfall og skráningu á heilblóðfalli, þar sem lítil eftirfylgni er í dag og þarf stórlega að auka og má […]
Í boði framkvæmdastjórnar Landspítalans 22. maí í Silfurbergi í Hörpu sat fulltrúi HEILAHEILLA ársfund Landspítalans 2026 undir yfirskriftinni “Mælanlegur árangur“. Margir tóku til máls, m.a. Alma Möller heilbrigðis-ráðherra og Runólfur Pálsson framkvæmdastjóri og fluttu þau athyglisverð erindi um uppvöxt og vaxandi þjónustu spítalans við auknar kröfur almennings. Í máli Runólfs kom fram að leitast yrði […]
Fleiri og fleiri Evrópuríki hafa að undanförnu undirritað viljayfirlýsingu samtakanna SAP-E, sem eru ein stærstu og öflugustu heildarsamtök fagaðila og slagþola í Evrópu gegn slagi (heilablóðfalli), þá með betri lýðheilsu og heilbrigðari lífstíl og spurningin er hvort íslensk stjórnvöld ætla sofna á verðinum og taka ekki þátt?! ESO og SAFE gerðu með sér samkomulag 2018 […]
Dagana 3.- 6. maí 2026 fóru þau dr. Marianne E. Klinke, taugahjúkrunarfræðingur, Björn Logi Þórarinsson, lyf- og taugalæknir og Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA á ráðstefnu samtakanna SAP-E í Maastrtict, Hollandi, sem landsráðgjafar (coordinators) samtakanna á Íslandi. Þarna voru komnir saman 100 fulltrúar evrópulanda, bæði fagaðilar og slagþolar er greindu frá stöðu hvers lands fyrir sig […]
Góður og vel sóttur laugardagsfundur félagsins var haldinn í húsakynnum Mannréttindasamtaka ÖBÍ, Sigtúni 42, Reykjavík, með nettengingu á Zoom um land allt 2. maí 2026. Formaður félagsins, Þórir Steingrímsson, kynnti fyrir fundarmönnum markmið forystunnar um áhersluatriði í endurhæfingu á landsvísu, eins og gerist víða í Evrópu og Ísland má ekki vera neinn eftirbátur þar um. […]
Afar afkastamikið og áhugavert stefnumótaþing ÖBÍ var haldið á Hilton hotel í Reykjavík 17. apríl, þar sem var fjallað um tillögur starfshópa, er unnið hafa í nokkur ár. Fulltrúar HEILAHEILLA, þau Þórir Steingrímsson formaður, Gísli Geirsson og Kristín Árdal varamenn stjórnar, ásamt Gurli Geirsson.
Reglulegi laugardagsfundur HEIILAHEILLA var haldinn í húsakynnum Mannréttindahúss ÖBÍ, Sigtúni 42 Reykjavík, þar sem formaðurinn, Þórir Steingrímsson, kynnti hvað væri framundan í starfi félagsins er varðar endurhæfingu eftir heilaslag. Sagði hann að hjá embætti landlæknis væri unnið að stofnun nýrrar landskrár, er gæti samræmst landsáætlun SAP-E um skráningu heilaslags og þá í samræmi við lög […]
Aðalfundur Heilaheilla 2026 var haldinn í Mannréttindahúsinu – ÖBÍ, Sigtúni 42 Reykjavík, sunnudaginn 7. marskl.11:00. Nettenging til Akureyrar á ZOOM. Formaður Þórir Steingrímsson setti fundinn og stakk upp á Gísla Geirssyni sem fundarstjóra, er var samþykkt mótatkvæðalaust er tók við fundarstjórn. Stakk hann upp á því að Kristín Árdal yrði fundarritari og var það […]
Stjórnarmeðlimir HEILAHELLA, Þórir Steingrímsson, formaður; Sædís Björk Þórðardóttir ritari; Páll Árdal gjaldkeri og Kristín Árdal, meðstjórnandi sátu einu fjölsóttustu ráðstefnu samtaka SAFE, öflugustu heildarsamtaka slagþolenda á Evrópusvæðinu í Stokkhólmi 8.-.9. mars 2026, þar sem u.þ.b. 400 fulltrúar voru saman komnir og ræddu um “Líf eftir slag”. Eftirfylgni er eitt af höfuðmarkmiðum félagsins í samvinnu við […]







