Í lok mánaðarins, 29. október 2026, er alþjóðadagur slagsins (heilablóðfallsins), en félagið heldur upp á hann laugardaginn 31. október í Kringlunni og Smáralind á höfuðborgarsvæðinu og á Glerártorgi á Akureyri kl.13-16. Félagið hefur árlega verið í samvinnu við Háskóla Íslands og oft sem áður verið með kynningu á félaginu og starfsemi þess fyrir hjúkrunarfræðinema og frætt þá um þau markmið sem félagið vekur athygli á að sem eru:
- Heilablóðfall er leiðandi dánarorsök í heiminum og fer fjölgandi.

- Kostnaðurinn mun aukast ef við aðhöfumst ekkert.
- Vitund almennings og forvarnir munu draga úr fjölda innlagna á sjúkrahúsum og draga úr kostnaði.
- Skjótur aðgangur í meðferð og endurhæfingu mun draga úr fötlun og langtímakostnaði.
- Skipulagður langtímastuðningur þýðir að fólk er félagslega hreyfanlegt að komast aftur í vinnu og menntun
Margar fyrirspurningar voru lagðar fram og upp frá því spunnust fjörugar umræður, m.a. að félagið gaf út sérstakt app í öll snjalltæki er leiðbeinir notendum hvernig á að glöggva sig á helstu einkennunum áfallsins og hvernig á að bregðast við því! Ekki hika, – og hringja þá strax í 112!

