Margir lögðu leið sína á fund HEILAHEILLA, er fjallað var um endurhæfingu eftir slag. Þórir Steingrímsson, formaður félagsins, opnaði fundinn og bauð fundarmenn velkomna og gerði grein fyrir fundarefninu og kynnti Valgerði Jónsdóttur, fyrrum skólastjóra, en hún var sérstakur gestur fundarins. Ræddi hún sem aðstandandi slagþola og kvaðst vera að stunda háskólanám eldri borgara um endurhæfingu eftir slag. Ræddi hún við fundargesti og svaraði fyrirspurnum og óskaði eftir að fá tal af sem flestum um þessi mál. Að lokum tók Þórir við og upplýsti fundarmenn um þátttöku félagsins í samstarfi í SAP-E, sem er samevrópsk þátttaka hérlendra fagaðila og slagþola um sérstaka landsáætlun hér á landi, sambærilega á við það er gerist á Norðurlöndunum. Hér á landi
er snemmtæk íhlutun heilbrigðis-kerfisins í ásættanlegu horfi, – en hvað varðar endurhæfingu og eftirfylgni gætum við gert miklu betur. Við getum verið með fremstu þjóðum í þessum málaflokki, ef okkur á ekki að hugnast að dragast aftur úr. Nokkrir fagaðilar í heilbrigðiskerfinu ásamt formanni HEILAHEILLA hafa myndað íslenskan SAPE-hóp er hvetur stjórnvöld til að setja á laggirnar landsáætlun um slagið og er það ekki vonum seinna! Þrátt fyrir öflugt heilbrigðiskerfi þá er Íslandi eina Norðurlandið án:
- aðgerðaráætlunar í slagmeðferð
- fullþróaðrar slageiningar
- slagskráning sem nær yfir landið
- viðurkenningar eða úttektar á slagþjónustu – „Stroke Unit/Stroke Center certification/audit“.
Þetta er í ósamræmi við stöðu hinna Norðurlandanna og getur leitt til ójafnræðis í meðferð, öryggi og gæðum þjónustunnar.

