DOMINO´S eflir HEILAHEILL

Góðgerðarpizza DOMINO´S 2024 var s.l. viku til styrktar HEILAHEILL og safnaðist 4.440.551 kr.– og á fyrirtækið miklar þakkir skilið. Formaðurinn, Þórir Steingrímsson tók á mótin fjárhæðinni úr hendi Magnúsar Hafliðasonar, forstjóra  DOMINO´S.  Fyrirtækið er að vekja athygli á góðu málefni og í þessu tilfelli slaginu, heilablóðfallinu, og baráttu félagsins að ná til almennings um að þekkja helstu einkennin, undir orðinu S-L-A-G, þ.e.

  1. S jóntruflun og skyntap

  2. L ömun útlima

  3. A ndlitslömun

  4. G latað mál

Að þekkja þessi einkenni og hringja strax í 112, er almenningur að vinna gegn sjúkdómnum með HEILAHEILL, – en slagið er metið 3. stærsta dánarorsökin í heiminum!  Hér á landi eru a.m.k. 2 á dag sem er tveimur of mikið!

    • Heilablóðfall er leiðandi dánarorsök og fötlunar er fer fjölgandi.
    • Kostnaðurinn mun aukast ef við aðhöfumst ekkert.
    • Vitund almennings og forvarnir munu draga úr fjölda innlagna á sjúkrahúsum og draga úr kostnaði.
    • Skjótur aðgangur að meðferð og endurhæfingu mun draga úr fötlun og langtímakostnaði

Skipulagður langtímastuðningur þýðir að fólk er félagslega hreyfanlegt að komast aftur í vinnu og menntun 

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur