Góður og vel sóttur laugardagsfundur félagsins var haldinn í húsakynnum Mannréttindasamtaka ÖBÍ, Sigtúni 42, Reykjavík, með nettengingu á Zoom um land allt 2. maí 2026. Formaður félagsins, Þórir Steingrímsson, kynnti fyrir fundarmönnum markmið forystunnar um áhersluatriði í endurhæfingu á landsvísu, eins og gerist víða í Evrópu og Ísland má ekki vera neinn eftirbátur þar um. Fundarmenn voru sammála um að markmið félagsins ætti að vera í samræmi við önnur Evrópulönd innan SAP-E og rætt var um einstaklingsmiðaða endurhæfingu eftir áfall og gott væri þrýsta á heilbrigðisyfirvöld/félagsmálayfirvöld um almenna kerfisbundna og skrásetta endurhæfingu í eftirfylgni eftir slag, samhliða framtíðar landsáætlun t.d.;

- OSA – (Occupational Self Assessment)
- SAQOL 39 (Stroke and Aphasia Quality of Life Scale)
- EQ VAS – (Europe Quality of Life).
- PROM – (Patient Reported Outcome Measures)
- PREMS (Patient Reported Experience Measures)
Heilbrigðisyfirvöld hafa þegar boðað breytingar í samskiptum sínum við sjúklingasamtök, eins og Heilaheill og voru fundarmenn sammála um að félagið væri á réttri braut með þátttöku sinni í því.

