Fleiri og fleiri Evrópuríki hafa að undanförnu undirritað viljayfirlýsingu samtakanna SAP-E, sem eru ein stærstu og öflugustu heildarsamtök fagaðila og slagþola í Evrópu gegn slagi (heilablóðfalli), þá með betri lýðheilsu og heilbrigðari lífstíl og spurningin er hvort íslensk stjórnvöld ætla sofna á verðinum og taka ekki þátt?! ESO og SAFE gerðu með sér samkomulag 2018 er tók til starfa 2022 um eitt merkilegasta og umfangsmesta heilsufarsátak í okkar álfu Nú um þessar mundir standa yfir sögulegar ráðstefnur samtakanna í Maastricht, sem þau dr. Marianne Elisabeth Klinke tauga-hjúkrunarfræðingur, Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA og Björn Logi Þórarinsson, lyf- og taugalæknir sitja Maastrtic, Hollandi, sem landsráðgjafar samtakanna á Íslandi, önnur um endurhæfingu og líf eftir slag og hin á vegum ESO, undir yfirskriftinni ESOC og koma u.þ.b. 5000 fagaðilar hvaðanæva úr heiminum til að taka þátt. Í Evrópu er stjórnvaldi hvers ríkis fyrir sig gefinn kostur á að vera með öðrum ríkjum í þessari sameiginlegu baráttu með undirritun sérstakrar viljayfirlýsingar þar um. Vonandi rennur sá dagur upp!



