Í boði framkvæmdastjórnar Landspítalans 22. maí í Silfurbergi í Hörpu sat fulltrúi HEILAHEILLA ársfund Landspítalans 2026 undir yfirskriftinni “Mælanlegur árangur“. Margir tóku til máls, m.a. Alma Möller heilbrigðis-ráðherra og Runólfur Pálsson framkvæmdastjóri og fluttu þau athyglisverð erindi um uppvöxt og vaxandi þjónustu spítalans við auknar kröfur almennings. Í máli Runólfs kom fram að leitast yrði við í framtíðinni að hlutfall starfsmanna, lækna o.fl. yrði í auknum mæli í 100% starfshlutfalli, en ekki í hlutastarfi og væru svo með vinnuaðstöðu utan spítalans á betri launum eins og nú er. Ætti spítalinn í erfiðleikum að mæta þeirri samkeppni.

