Samkvæmt síðustu rannsóknum 2024 að í Evrópu einni eru u.þ.b. 1,1 milljón manna er fær slag á ári, er veldur 460.000 dauðsföllum! Hér á landi eru u.þ.b. 2 á dag! Tveimur of mikið! Og fer því miður fjölgandi! Ástæðan eru óhollir lifnaðarhættir. Hverri velferð fylgir vandi, – að fara vel með sig í góðærinu! Blóðþrýstingur, streita, reykingar, ofneysla fíkniefna, hreyfingarleysi o.s.frv. geta valdið undirliggjandi áhættuþáttum, er leiða til slags. Staðreyndin er þessi:
- Heilablóðfall er leiðandi dánarorsök og fötlunar er fer fjölgandi.
- Kostnaðurinn mun aukast ef við aðhöfumst ekkert.
- Vitund almennings og forvarnir munu draga úr fjölda innlagna á sjúkrahúsum og draga úr kostnaði.
- Skjótur aðgangur í meðferð og endurhæfingu mun draga úr fötlun og langtímakostnaði
- Skipulagður langtímastuðningur þýðir að fólk er félagslega hreyfanlegt að komast aftur í vinnu og menntun
Verum þátttakendur í að:
– að fækka heilablóðföllum hér á landi um 10%; (a.m.k. draga úr vexti um 10%);
– að meðhöndla sjúklinga með heilablóðfall hér á landi á sérhæfðri bráðamóttöku um land allt, eins og er á Landspítalanum;
– að hafa landsáætlun um heilablóðfall er nær yfir allar heilbrigðisstofnanir frá sjálfbærni til lífs eftir heilablóðfal
– að innleiða að fullu! áætlanir fyrir fjölþátta lýðheilsuaðgerðir til – — að stuðla að og auðvelda heilbrigðan lífsstíl og að draga úr umhverfisþáttum (þ.m.t. loftmengun), félagslegum og efnahagslegum þáttum sem auka hættu á heilablóðfalli.