Hér þarf slagdeild!

Þórir Steingrímsson formaður HEILAHEILLA

Hér á landi hafa verið miklar framfarir í snemmtækri íhlutun heilbrigðiskerfisins er varðar blóðtappa í heila og á starfslið Landspítalans mikið hrós fyrir sitt starf. Þakka má það ungu og dugmiklu starfsliði sérhæfðra lækna og hjúkrunarfræð-inga, er hefur verið rómað á ársfundum hans, – sem og erlendis.  En hvað tekur svo við, þegar sjúklingurinn er kominn af bráðastigi? Hér vantar á það sem við á að taka!  Slagdeild!

HEILAHEILL er sjúklingafélag er vinnur að velferðar- og hagsmuna-málum þeirra er fengið hafa slag (heilablóðfall).  Allir geta gerst félagar, er hafa áhuga á málefninu. Félagið er aðili að ÖBÍ og erlendum samtökum, eins og t.d. SAFE, (Stroke Alliance for Europe), samtök evrópskra sjúklingasamtaka sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni og stuðla að betri heilbrigðisþjónustu hvers ríkis fyrir sig með því að vekja athygli almennings á áfallinu og hvernig eigi að bregðast við því.  Þá er félagið aðili að NAR, Nordisk Afasiråd, sem eru norræn samtök um endurhæfingu málstolssjúklinga eftir slag og gegnir nú formennsku í stjórn þess.

Með aðildinni hefur félagið fylgist með framförum í heiminum og borið íslenskt heilbrigðiskerfi saman við það sem gerst á Evrópusvæðinu.  Nokkuð metnaðarfullt og nýhafið átaksverkefni stendur nú yfir, SAPE, (Stroke Action Plan for Europe 2018-2030), sem er samstarfsverkefni SAFE og ESO, (European Stroke Organization), sem eru samtök fagaðila er veitir bæði leikum og lærðum í Evrópu almenna læknisfræðslu um slagið.  ESOog SAFE hófu þetta átak 2018 og hafa nú u.þ.b. 80 sérfræðingar frá 52 löndum tekið þátt og greint frá sínum vísindaárangri um slagið.

Meginmarkmið SAPE fyrir 2030:

  1. að fækka heilablóðföllum í Evrópu um 10%;
  2. að meðhöndla 90% eða meira af sjúklingum með heilablóðfall í Evrópu á sérstökum slagdeildum (stroke unit) sem fyrsta stigi umönnunar;
  3. að hafa landsáætlun um heilablóðfall sem nær yfir allar heilbrigðisstofnanir frá sjálfbærni til lífs eftir heilablóðfall;
  4. að innleiða að fullu innlendar áætlanir fyrir fjölþætta lýðheilsuaðgerðir til að stuðla að og auðvelda heilbrigðan lífsstíl og að draga úr óheilbrigðum umhverfisþáttum (þ.m.t. loftmengun o.s.frv.), félagslegum og efnahagslegum þáttum sem auka hættu á heilablóðfalli.

    Hér þarf slagdeild (stroke unit)

Markmiðið félagsins er að vekja athygli landsmanna á átaki SAPE að hér sé til staðar sérstök slagdeild fyrir þá sjúklinga sem fá heila-blóðfall með sérhæfu starfsliði.  Sé horft til jafnræðisreglunnar í stjórnsýslunni þá er óheimilt er að mismuna aðilum við úrlausn mála, – en meðferð og umönnun á heilablóðfallssjúklingum er að mörgu leyti síðri hér á landi miðað við það sem gerist á Evrópu-svæðinu, en þarf ekki að vera það.  Heilablóðfall er 3ja stærsta dánarörsökin í heiminum í dag og er alls ófullnægjandi að umönnun slagsjúklinga sé sett inn og saman við umönnun annarra sjúklinga er þurfa sína meðferð.  Hér á landi má ætla að nær því að umönnun krabbameinssjúklinga, hjartasjúklingua er með ágætum er hafa þó sínar deildir, – en hér vantar slagdeild!

Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur