Hornfirðingar áhugasamir!

Föstudaginn 24. maí 2019 létu Hornfirðingar ekki sig vanta á fyrirlestur um slagið (heilablóðfallið) er þeir Þórir Steingrímsson, formaður HEILAHEILLA og stjórnarmaðurinn Baldur Benedikt Ermenrekur Kristjánsson, stóðu fyrir undir yfirskriftinni “Við skulum láta slag standa”! Bæjarstjórinn, Matthildur Ásmundar-dóttir, var sérstakur gestur fundarins.   Er þetta liður í að vekja almenning til vitundar um sjúkdóminn um land allt og hvetja til réttra viðbragða er grunur leikur á um fyrstu einkenni slagsins.  Baldur hóf fundinn með því að bjóða fundarmenn velkomna og sagði svo frá sinni reynslu af áfallinu.  Þá tók Þórir við og fræddi fundarmenn um starfsemi félagsins og hvaða þjónustu það veitir landsmönnum og hvað ber að varast og þá ekki síður hvernig hægt væri, – þá með réttum viðbrögðum, koma í veg fyrir frekari skaða.  Hann greindi einnig frá þeim framförum og nýungum er hafa átt sér stað á Landspítalanum að undanförnu, m.a. um nýja verkferla við segabrottnám sem er nýlega hafið hér á landi og sýndi fréttamyndbönd þar að lútandi.  Lögð var áhersla á að landsbyggðin væri ekki undanskilin.  Nokkrar fyrirspurnir voru lagðar fram og svo héldu menn glaðir heim.

 

 

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur