Fundargerð Íslandsdeildar NAR (NORDISK AFASIRÅD) KL.16:15 18.08.2021
Fjarfundur Íslandsdeildar NAR (NORDISK AFASIRÅD) KL.16:15 18.08.2021 á samskiptarásinni https://meet.jit.si/FJARFUNDUR_HEILAHEILLA:
Mætt: Þórunn Hanna Halldórsdóttir, Baldur Benedikt Ermenrekur Kristjánsson og Þórir Steingrímsson.
Dagskrá:
- Þórunn greinir frá stöðu málstolsins.
Ekki var að frétta af málstolsþróun hér á landi og ekki alveg ljóst hver vilji hinna aðilarfélaganna er í sameiginlegri vinnu landanna. Vert væri að fá svar við því. - Þórunn ræðir áætlaðan fund NAR í október n.k.
Þórunn og Þórir töldu það ekki forsvaranlegt, eins og staðan er hér á landi vegna Covid-faraldursins (Delta), að boða til stjórnarfundar (augliti til auglitis) í NAR (Nordisk Afasiråd) 4-5 október 2021 og ákveðið var að fresta henni. Þórunn bauðst til að svara þeim fyrirspurnum er hafa borist frá hinum aðildarlöndunum í tölvupóstum. - Önnur mál.
Rætt var um að kalla eftir árgjaldi landanna.
Ýmislegt annað rætt. Engar frekari ákvarðanir teknar.
Baldur Kristjánsson