Gegn fjölgun heilablóðfalla!

Ný stjórn horfir fram á veginn, – að vinna gegn fjölgun heilablóðfalla!  Aðalfundur HEILAHEILLA fór fram í húsakynnum félagsins laugardaginn 24. febrúar 2024 í Sigtúni 42, 105 Reykjavík, með nettengingu í sal Einingar-Iðju Skipagötu 14, 600 Akureyri. Þórir Steingrímsson, fráfarandi formaður setti fundinn og stakk upp á Pétri Bjarnasyni sem fundarstjóra og Sædísi Þórðardóttur, sem fundarritara, er samþykkt var samhljóða.  Tók Pétur við fundarstjórn og gengið var til auglýstrar dagskrár.  Gaf fráfarandi formaður skýrslu um stöðu félagsins og Páll Árdal, fráfarandi gjaldkeri, gerð grein fyrir reikningunum.  Voru þeir samþykktir samhljóða og gengið var svo til stjórnarkjörs, formaðurinn til þriggja ára, meðstjórnendur og varamenn til tveggja ára. Þórir Steingrímsson var endurkjörinn formaður og í meðstjórn Páll Árdal og Sædís Björk Þórðardóttir. Í varastjórn þau Kristín Árdal og Gísli Geirsson. Þeir Þór Sigurðsson og Baldur Benedikt Ermenrekur Kristjánsson voru kjörnir skoðunarmenn reikninga.  Að lokum þakkaði kjörinn formaður fundarmönnum traustið, bauð nýkjörna stjórn velkomna og þakkaði fráfarandi stjórn samstarfið.

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur