Hávarður Tryggvason safnar fyrir Grensás

Fimmtudaginn14. júlí 2011 afhenti Hávarður Tryggvason, bassaleikari og „Ísfirðingur“, stjórn Hollvina Grensásdeildar allt að kr. 500.000,- til styrktar deildinni.  Gunnar Finnsson, formaður Hollvina Grensásdeildar tók við fjárhæðinni við hátíðlega athöfn á deildinni með þakkarorðum.  Stefán Yngvason, yfirlæknir, tók einnig til máls og þakkaði Hávarði fyrir hans framtak.  Þessa fjárhæð safnaði Hávarður undir átakinu „Á rás fyrir Grensás“, með því að hjóla Vestfjarðarhringinn í lok júnímánaðar og fór rangsælis hring um þjóðvegi „neðri kjálka“ Vestfjarða, alls  tæplega 700 km vegalengd.  Ferðina fór Hávarður til að fagna 50 ára afmæli sínu  og til að vekja athygli á átakinu.  Gerði hann þetta með dyggri aðstoð fjölskyldu sinnar, Þórunni Maríu Jónsdóttur, eiginkonu ásamt tveimur börnum þeirra er „trússuðu“ ferðina.  

 

      

Heilaheill hefur frá öndverðu stutt Hollvini Grensásdeildar og gegndi formaður HEILAHEILLA, Þórir Steingrímsson, varaformannsembætti í því félagi um nokkurt skeið.  Óskar HEILAHEILL Hollvinum Grensásdeildar fyrir þetta framtak.

Sjá fleiri myndir hér!

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur