Aðlafundur Heilaheilla 26. febrúar 2011 var aftur og haldinn í Hringsal LSH og þá beint með fjarfundabúnaði á Sjúkrahúsið á Akureyri. Formaður Þórir Steingrímsson setti fundinn og bauð fundarmenn um allt land velkomna og var Ellert Skúlason tilnefndur sem fundarstjóri og Þórólfur Árnson fundarritari. Þórir var endurkosinn formaður til næstu 3ja ára og með honum í stjórn eru Sigurður Hjalti Sigurðarson, Edda Þórarinsdóttir, Ingólfur Margeirsson, Albert Páll Sigurðsson, Þórólfur Árnason, Sgríður Þormar og Ólöf Þorsteinsdóttir. Á fundinu var lagður góður rómur að starfsemi félagsins og rædd voru aukin umsvif þess, þ.á.m. aukin samvinna við HJARTAHEILL. Nánari fréttir eru af aðalfundinum undir fundargerðum.