Fundur HEILAHEILLA á Norðurlandi var haldinn þriðjudaginn 8. mars á veitingarhúsinu Greifanum. Góð mæting var og það var rætt um að fara í leikhús í mars og á að ræða það betur á næsta fundi, einnig var rætt um að fara í ferð næsta sumar, svipaða þeirri sem farin var síðasta sumar. Það komu fram góðar tillögur sem þarf að ræða þegar nær dregur sumri.
Fundir eru eins og áður hefur komið fram annan þriðjudag í mánuði kl. 18.00 á veitingarhúsinu Greifanum nema annað sé tekið fram.