Þau Gunnhildur Þorsteinsdóttir [aðstandandi] og Bergur Jónsson [sjúklingur] hafa verið félagar HEILAHEILLA frá upphafi, þ.e.a.s frá 1994. Þau eru enn að og sækja fundi félagsins, sem eru ávallt fyrsta laugardag hvers mánaðar og eru í Heilakaffishópi félagsins [Harðjaxlar og hörkutól] í Veisluturninum við Smáratorg, Kópavogi. Þau voru spurð um hópinn og fundaraðstöðuna. „Þetta er mjög skemmtilegir og ánægjulegir fundir hjá félaginu og vil ekki missa af þeim“ sagði Gunnhildur. „Ég tek alltaf framförum, þó að það sé svo um langt liðið að ég fékk slagið, en fyrir mér eru þessir fundir mikils virði“ sagði Bergur. „Ég var svolítið kvíðinn að fara upp á 20. hæð í Turninum, – en svo var þetta ekkert mál!“ sagði Gunnhildur og brosti. „Við hvetjum alla slagþolendur að sækja fundi hjá félaginu, það skiptir höfuðmáli“ sagði Bergur að lokum, sem hafði frá miklu að segja, en það er of langt mál hér!