Fjölmennur laugardagsfundur HEILAHEILLA var samkvæmt venju 6. nóv 2010 og Þórir Steigrímsson, formaður, gerði grein fyrir stöðu félagsins. Þá voru sýndar svipmyndir af Slagdeginum og gerð grein fyrir hvaða þýðingu hann hefur fyrir samfélagið. Sérstakur gestur fundarins var Kolbrún Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar og var gerð grein fyrir þróun undirbúningsnefndar er varðar Þjónustu- og þekkingamiðstöð Sjálfsbjargar. Margar fyrirspurnir voru lagðar fram og síðan var sýndur þáttur um slag, eftir gómsætar kaffiveitingar.