Góð þátttaka var í sumarferð HEILAHEILLA, er farið var um Reykjanesið, söguslóðir er tengjast landnámi Íslands og allt fram á okkar tíma og jarðsaga þess er afar merkileg. Enn er verið að uppgötva ævintýralegar minjar. Farið var sem leið lá suður á Vatnsleysuströnd, Voga, Njarðvíkur, Keflavík og borðað þar hádegisverður í Duushúsi. Haldið var svo áfram í Garð, Gaðskagavita, Sandgerði, Stafnes, Ósbotanaveg, Hafnir (Kirkjuvogskirkja), Reykjanesvita og til Grindavíkur. Þar var drukkið kaffi. Síðan var farið frá Grindavík til Krýsuvíkur framhjá Kleifarvatn og heim. Veðrið var gott og söfn skoðuð á leiðinni.
Sjá má ljósmyndir hér og stutta myndbandsupptöku hér, er gefa innsýn í ferðina.