VESTMANNAEYJAR 2017
Ágætu félagar! Í ráði er að vera með hina árlegu og vinsælu sumarferð HEILAHEILLA í ágúst, – nánar tiltekið laugardaginn 12. ágúst 2017 kl.07:15 frá Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Gert er ráð fyrir að koma í Landeyjarhöfn kl.09:15 og þá beint um borð, – en brottför er kl.09:45. Hægt er að fá sér hressingu um borð, kaffi, kók o.þ.h.. í báðum leiðum. Þegar komið er til Eyja með ferjunni þá verða Eldheimar skoðaðir fyrir hádegið. Eftir hádegisverðinn verður farið í Sagnaheima og síðan í Safnahúsið. Eftir það verður farið um borð í ferjuna kl.18:15, – en brottför er kl.18:45. Skráning er hafin hér að neðan og eru ferðalangar hvattir til að taka með sér gesti og bóka í tíma, svo hægt sé að skipuleggja ferðina með nægum fyrirvara. Hver borgar fyrir sig í mat og á söfn! VERÐ: 5.OOO,- fyrir einstaklinginn! Fararstjórn! ÞEIR SEM VILJA FERÐAST MEÐ Á SÍNUM BÍLUM ER BENT Á EFTIRFARANDI: Brottför frá Vestmannaeyjum 08:30, 11:00, 13:45, 16:00, 18:45, 21:00 Brottför frá Landeyjahöfn 09:45, 12:45, 14:45, 17:10, 19:45, 22:00 |