Hinn árlegi viðburður, í lok hvers starfsárs, hefur stjórn félagsins gert með sér glaðan dag. Hafa stjórnameðlimir, sem og aðrir félagar er hafa lagt mikið af mörkum fyrir félagið, farið yfir farinn veg og komið saman, snætt og farið í leikhús. Í þetta skiptið var horft á einleikinn “Pabbinn” í Iðnó, við góðar undirtektir.