Þórir Steingrímsson formaður, meðstjórnendur Axel Jespersen og Baldur Kristjánsson, varamenn Páll Árdal og Kolbrún Sefánsdóttir,
Þórir | Axel | Baldur | Páll | Kolbrún |
Stjórninni er óskað velfarnaðar í starfi, félagsmenn eru hvattir til að veita fulltingi sitt til að gera veg og vanda félagsins sem mestan og bestan, slagþolendum til eflingar í öllu landinu.
Markmið félagsins er að vinna að velferðar- og hagsmunamálum þeirra sem fengið hafa slag (heilablóðfall), aðstandenda þeirra svo og fagaðila.
Minnt er á að heimilisfang HEILAHEILLA semer að Sigtúni 42, 105 Reykjavík og símanúmerin eru 561 2200 og 860 5585, heimasíðan www.heilaheill.is, á Facebook og YouTube, þar sem hægt er að sjá fræðsluefni o.f.l. undir leitarorðinu “Heilaheill”. Eru félagsmenn hvattir til að nýta sér þessa rafrænu félagsmiðlun til eflingar málstaðar félagsins sem er að finna í lögum þess.