Heila-appið komið í notkun!

Þau Lilja Stefánsdóttir, húsmóðir; RAX (Ragnar Guðni Axelsson) ljósmyndari og Þórir Steingrímsson formaður HEILAHEILLA voru í viðtalsþætti hjá Sirrý á Hringbrautinni 27. júlí 2016.  Fylgdu þau úr hlaði nýja heila-appinu, öryggistæki fyrir þá er kenna sér slags, beintengt við Neyðarlínuna 112.  Þessu appi er ætlað ókeypis í alla snjallsíma og getur hver sem er sótt það í gegn um sína veitu, í APPLESTORE, GOOGLEPLAY o.s.frv..  Hver notandi getur opnað sína veitu, ýtt á leitina (stækkunarglerið), slegið inn “Heilaheill” og þá birtist appið.  Þá birtist gluggi þar sem er óskað eftir kennitölu og síðan birtist orðið SLAG.  Undir hverjum staf er lýsing á fyrstu einkennum slags og getur hver og einn fræðst um einkennin.  Þegar notandinn er fullviss um að hann, eða honum nákominn, sé að fá slag sendist kennitalan sjálfvirkt í SMS (textaboðum) í Neyðarlínuna 112.  Þá sér starfsmaður Neyðarmóttökunnar hver sendir og vegna hvers!  Hafi notandinn ekki burði að tala eða gera grein fyrirhvar hann er, þá getur Neyðarlínan sett í gang leitun að snjallsímanum með nokkurri nákvæmni og leiðbeint bráðaliðum.  Þetta eykur á öryggi hvers og eins er býr yfir þessari tækni.  Eru allir hvattir til að nýta sér þetta og deila því með öðrum!

       

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur