Margir félagar HEILAHEILLA, sjúklingar, aðstandendur, fagaðilar, velunnarar og gestir sóttu kaffifund Heilaheilla, sem haldinn var á Hótel Reykjavík Centrum 4, febrúar s.l.. Voru sýnd af DVD-diskum viðtöl úr ýmsum sjónvarpsþáttum við þá sem höfðu fengið heilablóðfall og síðan skrafað og lagt á ráðin Framvarðasveitin, Katrín Júlíusdóttir alþingismaður, Þórir Steingrímsson ranns.lögr.maður, Edda Þórarinsdóttir leikkona og Ragnar Axelsson ljósmyndari voru á staðnum, svo og Ingólfur Margeirsson rithöfundur.
Ákveðið var að hittast aftur í “Rauða salnum” að Hátúni 12, húskynnum Sjálfsbjargar, á I. hæð kl. 10:00-12:00 4. mars 2006.