Skagamenn voru áhugasamir um heimsókn fulltrúa HEILAHEILLA, þeirra Þóris Steingrímssonar, formanns félagsins, og Gunnars Guðjohnsen Bollasonar, meðlims félagsins, í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi laugardaginn 24. mars 2018.
Eftir kynningu formannsins, þá var sýnd myndbandsupptaka af framsögu Björns Loga Þórarinssonar, sérfræðings í almennum lyf- og taugalækningum á taugalækningadeild Landspítala Háskólasjúkrahúss, er hann hélt á læknaráðstefnu 25. janúar s.l. þar sem hann segir frá í mjög mikilvægum atriðum um að auka rannsóknir á starfsemi heilans!
Eftir sýningu á hans fyrirlestri fór formaðurinn yfir stöðu félagsins og greindi frá Heila-Appinu (H-Happinu!) og hvernig almenningur getur aukið öryggi sitt með notkun þess!
Margar fyrirspurnir voru lagðar fram um stöðu félagsins og voru allir sammála um að vegur þess fer vaxandi, – með því að styðja við góða þróun mála eins og kom fram í erindi Björns Loga, sem sjá má hér: