Reglubundni þriðjudagsfundur HEILAHEILLA var haldinn 30.04.2013 að Síðumúla 6, Reykjavík við góða þátttöku. Sérstakur gestur fundarins var Sigríður Magnúsdóttir, talmeinafræðingur, er flutti fyrirlestur og svaraði fyrirspurnum. Í ráði er að hafa svo einn fund sem slíkan þriðjudaginn 28. maí nk. með fagaðila og geta félagsmenn notað tækifærið og fræðst um málefnin og lagt fram fyrirspurnir.
Eru sem flestir hvattir til að mæta og taka þátt.