Þegar hátíðin er gengin í garð, um land allt, eru félagar HEILAHEILLA á Akureyri undir góðu yfirlætii á Greifanum á Glerárgötu, eins og sést hér á myndunum. Þeir koma þar alltaf saman annan hvern þriðjudag hvers mánaðar kl.18-19 og deila með sér reynslu sinni, þá með öðrum er hafa gengið í gegnum það sama og veita hverjum öðrum stuðning í baráttunni. Á Akureyri er einnig mikið félagslíf innan félagsins, er gildir það jafnframt fyrir alla á Norðurlandi og eru norðlægir slagþolar, [er fengið hafa heilablóðfall o.s.frv.] aðstandendur þeirra, svo og fagfólk hvatt til að vera í samandi við Pál Árdal í s: 691 3844 og taka þátt í góðum félagsskap.