Hin reglubundni “Laugardagsfundur” félagsins var haldinn 1. desember 2012, í Síðumúla 6, Reykjavík. Þar sem það nálgaðist aðventuna, var þessi fundur með jólaívafi. Þeir feðgar, Þórarinn Eldjárn, rithöfundur, og Ari Eldjárn, uppistandari, skemmtu fundarmönnum undir yfirsskriftinni “Upplestur og uppistand” með eftirminnilegum hætti og stendur félagið í mikilli þakkarskuld við þá.
Þá skemmtu einnig þau Edda Þórarinsdóttir, leikkona, og Kristján Hrannar, með söng og spurningaleik, með þátttöku Birgis Henningssonar og Þóris Steingrímssonar.