SAFE sendi frásér fréttabréf, þar sem þátttöku HEILAHEILLA er getið. En eins og menn muna að þá er félagið í góðri uppbyggingu í samstarfi með SLAGFORENINGER I NORDEN (Stroke Associations in the Nordic Countries). SLAGFORENINGER I NORDEN eru norræn samtök slagþolenda innan SAFE, Stroke Alliance For Europe (SAFE) og má sjá þessi tengsl á heimasíðu félagsins hér.
Nú er verið að undirbúa árlegan aðalfund og ráðstefnu SAFE í Barcelona á Spáni í nóvember 2012 og fréttabréfið fjallar einnig um ráðstefnu WSO [World Stroke Organization] sem verður haldin í Brasilíu 10-13 október 2012. Eru félagar hvattir til að kynna sér fréttabréfið og vera í sambandi um efni þess, ef þeir telja þess þörf.