Aðalfundur HEILAHEILLA var haldinn samtíða með fjarfundarbúnaði (Skype) í Síðumúla 6 Reykjavík og á Glerárgötu 20, Akureyri. Fjölsótt var á fundinn á báðum stöðum og góðar veitingar voru bornar fram. Fundarstjóri var Sigurður Hjalti Sigurðarson og eftir skýrslu Þóris Steingrímssonar formanns HEILAHEILLA og Þórólfs Árnasonar, gjaldkera, voru nokkrar spurningar lagðar fram og reikningarnir síðan samþykktir. Þá voru nýir stjórnameðlimir kjörnir og HEILAHEILLARÁÐIÐ endurnýjað. Eftir umræður voru gómsætar veitingar bornar fram á báðum stöðum.
Sjá má skipan stjórnar og HEILAHEILLARÁÐSINS hér á heimasíðunni.