Stjórnarfundur HEILAHEILLA föstudaginn 10. febrúar 2017 kl.17:00 í Oddsstofu að Sigtúni 42, 105 Reykjavík, með tengingu norður á Akureyri.
Mættir: Þórir Steingrímsson, formaður, Kolbrún Stefánsdóttir, varaformaður, Páll Árdal og Axel Jespersen, gjaldkeri
Boðuð forföll: Gunnhildur Hjartardóttir og Baldur Kristjánssson, ritari
Fjarverandi: Haraldur B Ævarsson og Árni Bergmann
Dagskrá:
1. Formaður gefur skýrslu
2. Fjármál og reikningar
3. Undirbúningur aðalfundar
4. Önnur mál
Skýrsla formanns.
Formaðurinn greindi frá bréflegri fyrirspurn er hann ásamt Þórunni Halldórsdóttur, formanni talmeinfræðinga, sendi Velferðarráðuneytinu, um greiningu og fjölda málstolssjúklinga hér á land. Þá greindi hann einnig frá styrkumsókn er lagði inn hjá ráðuneytinu um styrk af safnliðum fjárlaga 2017 og vænti svars í lok febrúar. Kolbrún greindi frá samvinnu félagsins í Go Red-átakinu, með Hjartaheill og Hjartavernd.
Fjármál og reikningar
Axel gjaldkeri sagði fjárhagsstöðu félagsins góða og væri í þann veginn að ljúka uppsetningu reikninganna. Kvaðst hann ætla að vera í sambandi við félagskjörna skounarmenn reikninga á næstunni.
Undirbúningur aðalfundar
Formaðurinn greindi frá að aðalfundurinn yrði laugardaginn 25. febrúar nk. kl.13:00 og að fundarboðið hafi verið sent bréflega út í dag. Hvatti hann alla að gefa kost á sér og kvaðst mundi vilja kynna frambjóðendur viku fyrir fundinn í póstlista félagsins. Hvatti hann alla stjórnarmenn að gefa kost á sér, þó að lagabreytingin gerði ekki ráð fyrir nema þremur stjórnarmönnum og tveimur til vara.
Önnur mál
Formaðurinn fór fram á heimild að kaupa spjaldtölvu er hægt er að nota í þágu félagsins og var hún samþykkt,
Páll Árdal fór fram á heimild að kaupa tölvuprentara í þágu félagsins fyrir norðan og var hún samþykkt.
Fundi slitið kl.17:35
Þórir Steingrímsson
fundarritari