Mjög góður fundur Heilaheillaráðsins var haldinn í húsakynnum félagsins í Sigtúni 42, Reykjavík 5. maí s.l., er Gísli Ólafur Pétursson, stýrði. Í þessu ráði eiga sæti Bergþóra Annasdóttir (aðstandandi- Rvík.), Birgir Henningsson (slagþolandi – Rvík.), Kolbrún Stefánsdóttir (aðstandandi – stjórnarmaður – Rvík.), Sigríður Sólveig Stefánsdóttir (slagþolandi – Akureyri) Lilja Stefánsdóttir (slagþolandi – Reykjanes), Þórir Steingrímsson, (slagþolandi – Rvík.).
Mörg félög, sér í lagi góðgerðarfélög, hafa slíka ráðgefandi aðila innan sinna marka er standa fyrir utan daglegt amstur stjórnarmanna. Þetta ráð hefur verið ráðgefandi aðili fyrir stjórn, nær allt frá árinu 2007, er tekur stjórnsýslulegur ákvarðanir, en samræmast vilja hennar, t.d. um endurnýjun heimasíðunnar, o.s.frv..
Á þessum fundi komu fram afar merkilegar hugmyndir um framtíðarvinnu félagsins og afar gott vegarnesti fyrir stjórn að byggja .
Má segja að þessi fundur hafi verið í anda kvæðis Helga Seljans, eldri sem flestir þekkja, en þar segir:
Létt að muna í lengd og bráð ljúfa stund að eiga saman
Ég held það væri heillaráð Heillaráð að kalla saman.
Helgi Seljan, fv. þingmaður