
Þann 20.12.2006 hittust fulltrúar SAMTAUGAR og LSH á B2, en ár er liðið upp á dag frá því aðilar undirrituðu yfirlýsingu um samstarf með Landspítala-háskólasjúkrahúss og félaga taugasjúklinga á taugadeild sjúkrahússins , að viðstöddum Jóni Kristjánssyni, þá verandi heilbrigðisráðherra, er vottaði samkomulagið með undirskrift sinni. Landspítali – háskólasjúkrahús (LSH) telur það skyldu sína að rækta samband við almenning og ástunda samvinnu og samráð við hagsmunasamtök sjúklinga. Í samstarfi félaga taugasjúklinga eru eftirtalin félög: Félag MND – sjúklinga; Heilaheill; LAUF – Landssamtök áhugafólks. Heilaheill var með, fyrst félaga, í þessu sameiginlega fræðsluverkefni aðila og næsta skref eru annarra félaga að taka við á nýju ári.