Á síðast fundi HEILAHEILLA laugardaginn 6. janúar s.l., fluttu þau Helgi Seljan, fyrrum alþingismaður og formaður fjáröflunarnefndar Heilaheilla og Edda Þórarinsdóttir, leikkona og í framvarðasveit Heilaheilla, skemmtilega dagskrá, eftir skýrslu formannsins, Þóris Steingrímssonar. Eftir flutning Eddu tók Helgi til máls og fór með erindi sitt um sögu félagsins frá fyrri tíð. Þetta erindi Helga er birt hér á heimasíðunni og þótti fundarmönnum gaman að heyra flutning þeirra.