Eins og menn muna þá hlupu þau Guðrún Jónsdóttir, starfsmaður Glitnis og hennar maður, Sigurður H Sigurðsson, drjúgan spöl til styrktar Heilaheilla í fyrra, sem varð til þess að Glitnissjóður félagsins varð til. Þá safnaðist kr. 392.000,-. [sjá hér og hér]. Guðrún, Sigurður og formaður Heilaheilla, Þórir Steingrímsson, mættu á boðaðan kynningarfund hjá Glitni á Kirkjusandi 11. júní. Var verið að kynna þetta framtak bankans til góðra málefna með maraþonhlaupi sem verður 18. ágúst n.k. Nú geta allir sem vilja styrkja félagið tekið þátt í maraþoninu og skráð sig inn hér. Heilaheill hvetur alla velunnara félagsins að taka þátt í Maraþoni Glitnis og leggja góðum málefnum félagsins lið.