Farin verður hin margrómaða Sumarferð Heilaheilla nú í ágúst, er hefur verið bæði fróðleg og skemmtileg fyrir þá sem hana hafa farið. Sjá má myndir úr ferðinni s.l. sumar hér!
Ákveðið er að fara laugardaginn 11. ágúst frá Hátúni 12 kl. 10:00, austur fyrir fjall, þar á meðal til Stokkseyrar, Eyrabakka og Þorlákshafnar og gert er ráð fyrir að komið verður til baka síðdegis. Boðið verður upp á skoða söfn o.fl. og einnig er leiðsögn og fróðleikur um svæðið. Sameignlegur málsverður verður og kaffi fyrir mannskapinn. Verðinu verður stillt í hóf, en það var kr.4.500. s.l. sumar. Skráning fer fram á hér á heimasíðunni o
g í netfanginu Heilaheill@heilaheill.is. Þá er einnig hægt að hafa samband við Kristján í síma 893 2904 og Birgi í síma 821 5174. Takið daginn frá og skráið ykkur sem fyrst!