Fjöldi manns styrkti HEILAHEILL á síðastliðnu ári með því að taka þátt í hlaupinu og hétu á þá sem hlupu og kann félagið þeim miklar þakkir fyrir. Nú er hafinn aftur undirbúningur
Glitnishetjur félagsins, þau Guðrún Jónsdóttir og Sigurður H Sigurðarson, munu vera í forsvari fyrir félagið í hlaupinu s:8247171 og s:8637255 og er hægt að sjá fréttamyndir af þeim hér á heimasíðunni undir „Video“. Forskráningu í Reykjavíkurmaraþonið lýkur að morgni fimmtudagsins 21 ágúst. Ef áhugasamir um þáttöku hafa ekki skráð sig fyrir þann tíma gefst þeim kostur á að skrá sig í Laugardalshöll, daginn fyrir hlaup þann 22. ágúst frá klukkan níu árdegis til níu um kvöldið. Þennan sama dag fá allir þáttakendur afhent keppnisgögn. Meðal annars þáttökunúmer, flögu í skóinn og bol ásamt því að vera boðið í pastaveislu á vegum Barilla. Pastapartýið stendur frá 16:00-21:00 og til þess að fá aðgang að því þarf að framvísa keppnisnúmeri. Þau sem áhuga hafa á að kaupa sérstaklega pastamáltíð (til dæmis fyrir gesti) þurfa að greiða 500 krónur.
ÍTR býður öllum þátttakendum í sund í sundlaugum Reykjavíkur á hlaupadaginn og daginn eftir. Sérstakur aðgöngumiði fylgir keppnisgögnum sem þarf að afhenda í sundlaugunum. Eru allir velunnarar HEILAHEILLA hvattir til þátttöku!