Aðalfundur Hollvina Grensásdeildar var haldinn 27. maí 2009 í safnaðarheimili Grensáskirkju. Þórir Steingrímsson, varaformaður, var kosinn fundarstjóri og Sigmar Þór Óttarsson var kosinn ritari fundarins. Gengið var til dagskrár og eftir skýrslu formanns, Gunnars Finnssonar, voru bornar fram fyrirspurnir af fundarmönnum. Guðrún Pétursdóttir, gjaldkeri, fylgdi reikningum félagsins úr hlaði og síðan samþykktir. Nú stjórn var kosin, þau Gunnar Finnsson, Þórir Steingrímsson, Guðrún Pétursdóttir, Þórunn Þórhalldsóttir, Ásgeir B. Ellertsson og Baldvin Jónsson. Þá voru m.a. rædd framtíðarmarkmið félagsins og umræður spunnust um stöðu fatlaðra í samfélaginu. Var góður rómur gerður að stjórnin hugðist vera meira í samstarfi við ráðuneytin, Sjálfsbjörg og Öryrkjabandalagið í umræðunni um notendastýrða þjónustu. Meðal þeirra er tóku til máls voru Stefán Yngvason sviðsstjóri lækninga, endurhæfingarsviðis Grensásdeildar, Sigrún Knútsdóttir, yfirsjúkraþjálfari Grensásdeildar, Guðrún Pétursdóttir, gjaldkeri Hollvina Grensásdeildar og þá Edda Heiðrún Bachmann, leikkona og leikstjóri. Lögð var mikil áhersla á mikilvægi Grensásdeildar og þess starfs sem þar er unnið. Ræddu fundarmenn um framtíðaráform og nokkur markmið voru sett.
Friðhelgisstillingar
Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.
Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.
Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.