
Laugardaginn 31. október sl. hélt félagið HEILAHEILL, sérstakan SLAGDAG í Kringlunni, Smáralindinni og við Glerártorg, Akureyri frá kl.13:00-16:00 undir slagorðunum „Áfall er ekki endirinn!“ og „Þetta er ekki búið!“ og lagði áherslu á of mikla saltnotkun. Í verslunarmiðstöðvunum voru læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir fagaðilar er meðhöndla sjúklinga er fengið hafa slag og veittu upplýsingar og gerðu m.a. áhættumat á gestum og gangandi og félagar HEILAHEILLA dreifðu upplýsingum. Þá var þarna einnig starfsfólk frá Lýðheilsustöðinni er seldi bækur um mataræði. Félagið samanstendur af þeim er fengið hafa slag [heilblæðingar, blóðtappa eða súrefnisþurrð af einhverju tagi], aðstandendum og fagaðilum, svo sem læknum, hjúkrunarfræðingum og öðrum þeim sérfræðingum,hver á sínu sviði. Markmiðið er að koma á framfæri fræðslu um sjúkdóminn til þess að bjarga mannslífum. Hér á landi er um 700 manns er fá heilablóðfall á ári, eða u.þ.b. 2 á dag. Reikna má með að 1 af hverjum 7 fá slag á lífsleiðinni, 2 einstaklingar af 1000 fái slag árlega og um 8 af 1000 séu með menjar slags á hverjum tíma. Slagdagurinn er haldinn í því skyni að vekja athygli á sjúkdómnum því slag er þriðja algengasta dánarorsök hérlendis Heilaheill vill láta slag standa með og vekja athygli á starfsemi sinni og kynna almennt um sjúkdóminn slag og vekja til umhugsunar á útbreiðslu hans og hvetja til betra lífernis, þ.á.m.a. á heimasíðu sinni www.heilaheill.is.