
Sumarferð HEILAHEILLA tókst með ágætum 14.08.2010 eins og undanfarin sumur og voru ferðalangar mjög ánægðir. Farið var frá Hátúni 12 og Anna Þrúður Þorkelsdóttir var leiðsögumaður. Gott veður var fyrripart leiðarinnar, en rigndi þegar komið var nær Stykkishólmi Þar voru skoðaðir áhugaverðir staðir og borðaður hádegisverður. Síðan var haldið í Bjarnarhöfn, en bærinn Bjarnarhöfn er í Helgafellssveit. Þar var hákarlasafn staðarins skoðað og lítil og athyglisverð timburkirkja, sem er stolt Hildibrands bónda á staðnum, er félagar HEILAHEILLA hlýddu á í kirkjunnu. Hún þjónar aðeins sem heimiliskirkja Bjarnarhafnar, því að engir aðrir bæir eiga sókn til hennar. sem er bær og kirkjustaður í Hraunsvík vestan við Stykkishólm. Síðan var hadli að Laugagerðisskóla,þar sem drukkið var kaffi. Þaðan var haldið til Reykjavíkur og á leiðinni voru málin rædd og sungið. á einhverjum góðum stað.