HEILAKAFFI áfram eftir áramót!

HEILAHEILL hefur verið með HEILAKAFFI á veitingastaðinn VEISLUTURNINN í Kópavogi alla þriðjudaga, frá kl.11:00-15:00  fyrir þá sem hafa orðið fyrir slagi og glíma við málstol, gaumstol, hugstol, verkstol o.s.frv.  Þegar eru komnir nokkrir hópar sem í eru u.þ.b. 10-12 manns, er ræða saman sér til æfingar og ánægju.  Það er gefinn góður rómur að þessum fundum, þar sem þeir eru sagðir skila miklum árangri fyrir þá sem hafa orðið fyrir slagi.  Einn hópurinn fór út að borða í fundartíma sínum í Turninum og voru allir mjög áægðir.  Eru félagar hvattir til að mynda svona hópa undir merki félagsins og vera þá á þriðjudögum, er félagið hefur húsnæðið til ráðstöfunar.  Farið er inn í Turninn á 2. hæð af bílstæðum gegnt Smárabíó að sunnanverðu.  Fundarherbergið er á 19. hæð í Turninum við Smáratorg, þægilegt og rúmgott með frábært útsýni yfir „veröldina“.  Þægileg, örugg og hraðskreið lyfta upp á 19. hæð. 

Kaffi á staðnum.

Sjá myndir hér!

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur