Fimmtudaginn 1. september hefst vetrarstarf HEILAHEILLA reglulega með fastri viðveru á Grensásdeild, alla fimmtudaga frá kl.14:00-16:00. Nú geta allir slagþolendur og aðstandendur þeirra aflað sér upplýsingar um félagið á þessum tíma og gildir einu hvort þeir séu í meðferð á deildinni eða ekki. Þeir Björn Sævar Baldursson og Guðmundur Eyjólfsson verða fulltrúar félagsins og eins og þeir voru sl. vetur og verða til staðar, veita upplýsingar um starfsemina og hvert fólk geti snúið sér. Frekari upplýsingar eru svo veittar í 860 5585.