Heilaheill á Norðurlandi heldur súpufund þriðjudaginn 11. október kl 18.oo á Stássinu á Greifanum Akureyri. Sýndar verða myndir sem teknar voru í ferð Heilaheilla í sumar þar sem farið var á safnið á Mánárbakka og í Fuglasafnið í Mývatnssveit í sumar. Undirbúningur er einnig hafinn fyrir Slagdaginn 15. október og er í fullum gangi, er verður haldinn á Glerártorgi frá kl. 13-16. Eru þeir sem eru reiðubúnir að aðstoða félagsmenn á þessum degi beðnir um að hafa samband við Pál Árdal í síma 691 3844.