Heilaheill á Norðurlandi hélt fund þriðjudaginn 13. desember á Greifanum. Mikil frostharka og snjókoma er búin að vera undanfarið en menn létu það ekki á sig fá. Það var talað um það, að við getum verið í myndsambandi við formann Heilaheilla og var ákveðið að hann myndi tala við okkur á næsta fundi, en hann verður þriðjudaginn 10. janúar 2012 á Greifanum.
Verður fundurinn með aðeins öðru sniði en venjulega, að því leiti að við fáum okkur súpu dagsins salat disk og brauð, (þ.e. ekki súpa og salatbar). Heilaheill á Norðurlandi óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Hittumst heil á nýja árinu :=)