Þeir Heilakaffisfundir, er hafa verið haldnir á vegum HEILAHEILLA hvern þriðjudag frá kl.13-15 í Síðumúla 6, hafa gefið góða raun. Allir þeir sem hafa verið á þessum fundum frá öndverðu og þeir sem eru enn að bætast í hópinn eru þessarar skoðunar, – og hafa gaman að!
Það er sama hvaða afleiðingum fólk hefur orðið fyrir eftir slagið, – það er alltaf hægt að sjá björtu hliðarnar! Þannig eru hóparnir byggðir upp. Bjartsýnin er uppmáluð hjá hverjum og einum og allir eru að efla sjálfan sig! Þannig starfar félagið, áfall er ekki endirinn. Minnt er á félagsfundinn á laugardaginn 4. Febrúar nk., þar sem félagar koma saman og sýndar verða myndir úr félagslífinu. Og ekki má gleyma kaffinu, – það fer ekki framhjá neinum sem til þekkir!