Eftir skýrslu Þóris Steingrímssonar, formanns, tók Edda Þórarinsdóttir, söng og leikkona, sem er þekkt fyrir frammistöðu sína í “Þrjú á palli” úr leikritinu “Þið munið hann Jörund” eftir Jónas Árnason, lagið með þeim Birgi Henningssyni, Böðvari Ólafssyni og Halldóri Geir Jensssyni á fjölsóttum reglulegum laugardagsfundi HEILAHEILLA. Það var hent gaman að þessari uppákomu og þau kölluð “Fjögur á palli”! Birgir flutti einnig frumsamið lag við þetta tækifæri sem er tileinkað HEILAHEILL. Þetta var síðasti laugardagsfundur félagsins á þessum starfsvetri og næsti fundur verður ekki fyrr en laugardaginn 1. september í haust!