HEILAHEILL og HJARTAHEILL eru með sameiginlega ferð upp í Borgarfjörð frá Reykjavík og HEILAHEILL er með ferð til Dalvíkur og Hofsóss frá Akureyri! Margt er í boði! – Félögin voru með sameiginlegan ferðahóp í fyrra fyrir norðan og sunnan heiða, er gaf mjög góða raun. Var hún eftirminnileg fyrir þá sem fóru og nú er stefnan upp í Borgarnes um næstu helgi og til Dalvíkur og Hófsóss! Þegar hafa borist allnokkrar bókanir og kæmi sér vel fyrir skipuleggjendur ef félagsmenn, aðstandendur þeirra og gestir, – og þá einnig þeir sem láta sig málefnin varða, að þeir bókuðu sig sem fyrst!
Ferðist með HEILAHEILL og HJARTAHEILL og bókið ykkur sem fyrst hér á heimasíðunni á hnappnum fyrir ofan FERÐ 2012. Upp í Borgarfjörð frá Reykjavík og til Dalvíkur og Hofsóss frá Akureyri! Margt er í boði! –
REYKJAVÍK! | AKUREYRI! | |
Hin árlega og eftirsóknarverða sumarferð HEILAHEILLA og HJARTAHEILLA 2012 verður farin í sumar upp í Borgarfjörð og enn er verið að uppgötva ævintýraleg umhverfi! – – Sjáið upplýsingar og skráið ykkur hér |
Hin árlega og eftirsóknarverða sumarferð HEILAHEILLA á Akureyri 2012 verður farin 9. júní í sumar á Dalvík og Hofsós. Enn er verið að uppgötva ævintýraleg umhverfi! Ferðin verður þátttakendum að kostnaðarlausu, en hver og einn verður að greiða sitt viðurværi á leiðinni og aðgang að söfnunum! Félagar eru hvattir til að fjölmenna, taka með sér gesti, fá upplýsingar á heimasíðunni og skrá sig hér eða hringja í Pál 691 3844! |