Fulltrúar félagsins, þau Dagmar Bjartmarz, Ragnheiður Jónsdóttir, Ólöf Þorsteinsdóttir og Þórir Steingrímsson stóðu vaktina í kynningarbás félagsins í Laugardalshöll laugardaginn 17. ágúst sl.
Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoninu voru að skrá sig og gáfu sig á tal við þau og fræddust um félagið. Það er mjög mikilvægt fyrir félagið að vera áberandi þar sem mannamót eru sem þessi.
Starfsfólk BATA
Eiga allir miklar þakkir skilið sem lögðu sitt af mörkum fyrir félagið í að afla fjár og starfsfólk frá endurhæfingastöðinni BATA tóku virkar þátt.
Þá safnaði þessi María Guðrún Guðmundsdóttir mest sem einstaklingur fyrir félagsstarfsemina og hægt að er afla upplýsinga um hana og aðra hlaupara hér!