
Á undanförnum árum hafa fulltrúar HEILAHEILLA verið til staðar á B-2, Taugadeild Landspítalans, alla þriðjudaga yfir vetrarmánuðina frá kl.14:00-15:00 og þá líka á Grensásdeild alla fimmtudaga frá kl.13:30-15:30. Þarna eru einstaklingar til staðar er m.a. hafa farið í gegnum áfallið, endurhæfingu og aftur út í atvinnulífið á ný. Eru allir, sjúklingar, aðstandendur og fagaðilar er vilja kynnast endurhæfingunni frá sjónarhóli sjúklings, hvattir að gefa sig á tal við þá á þessum stöðum. Slagið er eins mismunandi eins og mennirnir eru margir og geta allir lent í þessu. Það skel tekið fram að þessi viðtöl eru ekki með formlegum hætti og eru einungis til upplýsingaröflunar, er byggist á reynslu sögum þessara fulltrúa.