Á afmælisfundi HEILAHEILLA 16. maí s.l. fundaði stjórn félagsins skömmu áður og voru magar veigamiklar ákvarðanir teknar. Það var margt um manninn á 20 ára afmælinu og eftir kynningu Páls Árdals, talsmans Norðurdeildar félagsins, sem staðsett er á Akureyri, tók formaður félagsins, Þórir Steingrímsson við og sagði sína sögu af slaginu, er var fyrir 10 árum síðan. Einnig ræddi hann um tengsl félagsins við innlend og erlend félagasamtök, svo sem ÖBÍ, SAMTAUG (Samtök taugasjúklingafélaga), SAFE (Stroke Alliance For Europe), Slagforeningerne i Norden o.fl.. Eftir honum hélt Ingvar Þóroddsson, yfirlæknir á Kristnesi, fróðlegan fyrirlestur og lagði út frá endurhæfingu eftir heilablóðfall.
Í ráði er að taka á móti félögum úr færeyska systurfélaginu, Heilafélaginu, í sumar á Akureyri. Horfa menn með tilhlökkun á þá heimsókn. Þau Hjalti og Lára Sóley fluttu nokkur lög fyrir fundarmenn á milli atriða við góðar undirtektir. Að lokum fóru fundarmenn glaðir heim.